Oliver Peoples er sólgleraugnaframleiðandi af bestu gerð. Verum töff og notum sólgleraugu í sumar, bæði til að lúkka vel og til að verja augun fyrir óæskilegum sólargeislum.
KVA-sólgleraugun eftir evrópska hönnuðinn Kris Van Assche sem nú er listrænn stjórnandi fyrir karlfatalínur Dior. Umgjörðin er bæði sportleg og fáguð í senn.
SHELDRAKE -gleraugun eru innblásin af Andy Warhol og eru frekar nett.

SHELDRAKE-flip-up clip-on eru smekkleg gleraugu úr sumarlínunni 2010 og voru þau gerð til heiðurs gleraugunum hér að ofan. Tíska og virkni eru hámóðins í dag og hægt er að setja
4 tegundir glerja á umgjarðirnar.
Auglýsing Oliver Peoples fyrir sumarið 2010.
Skoska söngkonan Shirley Manson og ungi leikarinn Elijah Wood sýna gleraugnalínuna í myndbandinu “the children are bored on sundays“.


