19
Jul

Eins og flestir golfáhugamenn vita var Opna breska meistaramótið haldið í St. Andrews í Skotlandi um helgina. Þar bar Louis Oosthuizen, 27 ára gamall Suður-Afríkubúi, sigur úr býtum mjög óvænt. Hann var 16 höggum undir pari og sigraði á mjög öruggan hátt – með 7 högga mun.

Aðeins 19 ára gamall steig hann inn í atvinnumennskuna og hefur ekki vikið frá henni síðan. Hann hefur unnið allnokkur mót en kom inn á Opna breska meistarmótið í 54. sæti yfir bestu atvinnugolfara heims. Eftir fyrsta daginn komst hann í 2. sætið á eftir Rory Mcllroy. Á föstudag komst hann hins vegar upp í fyrsta sætið en tapaði forystunni til Paul Casey eftir lítilsháttar mistök. Casy gerði hins vegar reginmistök á lokadeginum og þar með tók Louis forystuna á ný.

2010 Open Champion Louis Oosthuizen of South Africa poses with the Claret Jug on the Swilken bridge on July 19, 2010 in St Andrews, Scotland.

“Everyone told me it was just a matter of me believing in myself and my first win on the European Tour really helped. But to win an Open is special. To win at St Andrews is extra special.” 

Já kallinn kom svo sannarlega á óvart og er kominn á lista yfir 15 bestu golfara heims.
Nokkuð stórt stökk!

Leave a Reply