Ég spurði tvo vini mína hvort þeir ættu eitthvað úr Zöru. Þeir settu upp skrýtinn svip og spurðu mig hvort það væri ekki verslun sem seldi einungis kvenmannsföt. Mér fannst undarlegt að þeir höfðu ekki hugmynd um karlfatadeild Zöru hér á landi! Báðir viðukenndu svo að vera svolítið fastir í því að kaupa sér alltaf föt í sömu búðinni og voru sammála um að þeir þyrftu kannski að kynna sér fleiri verslanir.
Flott frá Zöru undanfarna mánuði.
Sumarlegt og létt.
Er að fíla þetta lúkk!
Mega töff þverslaufa.
Í síðasta tölublaði af DUDE magazine (sjá hér til hliðar) var að finna fullt af flottum vörum úr Zöru og fleiri búðum. Ég mæli hiklaust með að þið skoðið úrvalið í fleiri búðum en einni, þó þið nennið því ekki – þá gætuð þið notið góðs af. Endilega kíkjið inn í blaðið líka, rennið músinni yfir fötin og skoðið stærri myndir og verð.






