27
Jul
stored in: Nýtt, Tækni and tagged:

Enn bætist í flóru Apple.

Í síðasta tölublaði DUDE magzine ræddum við um nýjasta iPhone og nú hefur Apple sett þessa nytsamlegu vöru á markað.

 

Í dag var þetta tryllitæki kynnt. Músin út og þetta inn – kallað “Magic Trackpad” og er gert fyrir borðtölvur. Með þessu á að vera mun auðveldara að vinna á tölvuna, ýta á hnappa, skrolla, færa músina og fleira. Apple-menn segja að fletta á milli internetsíðna sé núna eins og fletta tímariti og að skrolla verður mun náttúrulegra en það hefur verið. Hægt að klikka og double-klikka hvar sem er á þessu tryllitæki, hægt að súmma, snúa með því að nota fingurgómana og fleira. Þú getur meira að segja tekið út skipanir  sem þú notar ekki (ef þú notar til dæmis aldrei súmmið) eða bætt við skipunum hvenær sem er. 

Magic Trackpad tengist við bluetooth og er hægt að nota í staðin fyrir mús eða samhliða henni. Það er eins í laginu og þráðlausa lyklaborðið frá Apple ef þið kannist við það og ætti því að lúkka vel á tölvuborðinu.

Tjékkið á þessu á apple.com!

Leave a Reply