01
Jul
stored in: Byggingar and tagged:

Já SÆLL!

Var að skoða myndir af Marina Bay Sands hótelinu sem er sagt vera dýrasta hótelið í þessari veröld. Hótelið er í Singapore og hefur það að geyma stærstu útisundlaug í heimi – sem staðsett er á 55. hæð þess.

Smá mannvirki hér á ferð.

Svona laugar eru kallaðar “infinity”-laugar og þær stækka einhvernveginn sjóndeildarhringinn.
Þetta virkar allavega eins og maður muni steypast fram af þessum fimmtíu og fimm hæðum!
Í raunveruleikanum hellist vatnið fram af brúnum laugarinnar og í vatnssöfnunarþró rétt
fyrir neðan, vatnið fer í gegnum kerfi sem svo spýtir því aftur upp í laugina.

Laugin er á þaki “SkyPark”, sem er þak yfir þrjá turna hótelsins.
Hún er löguð eins og skip og er meira að segja lengri en Eiffel-turninn ef hann væri lagður á hlið.

Mig minnir að ég hafi lesið að laugin sé heit, þannig að þetta er hinn ágætasti heitapottur með útsýni!

Set þetta á “áður en ég dey” listann.

Eruð þið ekki annars að fíla blaðið?

 

One Response to “Marina Bay Sands”

  1. Anna Says:

    Ég er að fíla blaðið og bloggið í botn! Ég mæli samt með því að þið hafið aðeins meira “classy” forsíðu á næsta tölublaði, síðasta sagði ekkert um hversu áhugvert blaðið er!

Leave a Reply