Þó svo að margir menn vaxi á sér bringuna (t.d. David Beckham) og að tískan hafi þróast í þá átt, þá eru oftar en ekki ”alvöru karlmenni” þeir menn sem eru með slatta af bringuhárum. En það er svo skrýtið með mannslíkamann, að það eru ekki allir sem virðast getað “safnað” bringuhárum eins og Burt Reynolds eða Tom Sellick.

Bringuhár Ed Westwick eru dáð af kvenmönnum um allan heim
Til mikillar hamingju eru til leiðir til auka hárvöxt á bringunni. Það er eiginlega bara mjög auðvelt, það eru til nokkrar fæðutegundir sem þú getur borðað til að auka hárvöxtinn.
Egg

“Þú ert ekki karlmenni ef þú hefur ekki stútað einum bolla að hráum eggjum” – eða það sögðu vaxtaræktarmenn fyrir svona 100 árum. Jafnvel kvikmynda-icon eins og súperstjarnan Rocky Balboa sagði að “hrátt væri best”. Alvöru boxarar borða þó ekki hrá egg. Í raun geta hrá egg verið hættuleg heilsunni og við hjá DUDE magazine mælum með þeim elduðum. Þá er minni hætta á salmonellu og öðrum bakteríum sem hægt að er finna í hráum eggjum (ég fór allt í einu að velta fyrir mér að nú þyrfti ég að hætta að borða kökudeig). Slepptu hráum eggjum og taktu þér tíma til að þeyta þau og búa þér til ommilettu, líkaminn mun þakka þér greiðann.
Sardínur
Sardínur eru hlaðnar próteinum og ómega 3 fitusýrum. Til að mynda eru 25 gr. af 100 gr. af sardínum prótein. Þær eru líka lofaðar fyrir hjálpa starfsemi hjartans og fyrir að halda hárinu heilbrigðu. Þær auka því hárvöxt, þannig að taktu þér dós, gaffal og “dig in”.
Lifur og laukur
Hefur þig alltaf langað til að tjékka hvort vinir þínir séu ekta karlmenni? Þú getur gert það með því að elda handa þeim lifur og lauk – og fylgjast síðan með fyrsta bitanum. Þó að þeir muni væntanlega hreyta einhverju í þig, þá getur þú sagt þeim að næringargildið í máltíðinni sé yfir allt hafið. Kálfalifur er til dæmis full af próteini, járni, sinki, vítamínunum A, C og B, B2, B12, ásamt bíótíni, fólínsýru og fleiru. B-vítamín eru jú þau sem eru mjög mikilvæg fyrir hárvöxt. Bíótín er líka oft gefið þeim sem hafa þurft að upplifa mikinn hármissi. En það er ekki bara lifur sem getur aukið hárvöxt, laukur getur líka reddað þér bringuhárum.
Chili

Chili hefur verið notað í aldir í amerískri menningu. Hvort sem þér líkar við sterkan mat eða ekki, þá gat það sagt til um karlmennsku þína hvort þú höndlaðir chili-ið eða ekki. Reyndar var ekki vitað á þeim tíma að chili gæti hjálpað til við hárvöxt manna á bringunni. Núna hafa vísindamenn kannað það og segja chili stuðla að auknum hárvexti. Capsaicin, efni sem er í chilinu og gerir það svona sterkt, virðist hafa áhrif á líffræðilegt ferli hárvaxtar. Baunir og nautakjöt eru líka full af próteinum, sinki og járni og það er því auðvelt að búa til vandaða, karlmannlega máltíð sem eykur hárvöxtinn til muna.
Jæja, allir út að safna!